Á fundi skipulagsfulltrúa 26. ágúst 2016 var lögð fram fyrirspurn
Rögg ehf.
, mótt. 19. ágúst 2016, um að reka gististað í flokki II í rýmum merktum 01-05 og 01-06 í húsinu á lóð nr.1-5 við Barðastaði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. september 2016.