Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Málstaðs ehf., mótt. 2. maí 2016, um að breyta skrifstofu á 4. og 5. hæð hússins á lóð nr. 3 við Ingólfsstræti í gestaíbúð, samkvæmt uppdr. Byggingar og skipulagshönnunar ehf., dags. 29. apríl 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. apríl 2017.