Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að stækka íbúð á 2. hæð með því að hækka þak og útbúa svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús auk þess að bæta við svölum á rishæð íbúðarhúss nr. 19 við Barmahlíð. Erindi fylgir A3 afrit af teikningasetti dags. 25. mars 2020 með áritun eigenda íbúða 0001 og 0101. Gjald kr. 11.200