Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 24. júlí 2014 með leiðréttingu á texta varðandi umsókn Kökusmiðjunnar ehf. um breytingu á rekstarleyfi þar sem óskað var eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs. Sótt var um breytingu fyrir veitingastaðinn C Is For Cookie, Týsgötu 8, úr flokki I (án áfengis) í flokk II, með veitingatíma áfengis til kl. 23:00 alla daga. Einnig var óskað eftir að halda leyfi fyrir útiveitingum á 2 borðum við hlið hússins. Í leiðréttingu felst viðbótin "með veitingatíma áfengis til kl. 20:00" Einnig er lögð fram leiðrétt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. júlí 2014.