Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. október 2016 var lögð fram fyrirspurn
Hótels Óðinsvé hf.
, mótt. 10. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 8 við Týsgötu sem felst í að heimilaður verði rekstur gistiheimilis í flokki II í sex íbúðum á 2., 3. og 4. hæð hússins. Einnig er lögð fram greinargerð Bjarna Hákonarsonar f.h.
Hótels Óðinsvé hf.
, dags. 30. september 2016.