Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta veitingastað í flokki II í verslunarhúsi á lóð nr. 56 við Snorrabraut.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Landnotkun samræmist ákvæðum Aðalskipulags Reykjavíkur og gildandi deiliskipulags svæðisins.