Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. ágúst 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. ágúst 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta "take away" veitingastað í rými 0101 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 86-94 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. ágúst 2014.