Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. febrúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að stækka 4. hæð til vesturs í fjölbýlishúsi á lóð nr. 86-94 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4, mars 2014..