Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar D. Baldurssonar, mótt. 9. október 2017, ásamt greinargerð, dags. 9. október 2017, varðandi stækkun tveggja efstu hæða hússins á lóð nr. 15A við Njálsgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. október 2017.