Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að fá húsvarðaraðstöðu samþykkta sem séreign 01-0103 í húsinu á lóð nr. 2 við Ásholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2015.
Gjald kr. 9.823