Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. apríl 2015 þar sem spurt er hvort breyta megi atvinnu-/verslunarhúsnæði í stúdíóíbúðir fyrir gistirými til útleigu í skammtíma- eða langtíma útleigu með aðgangi frá Laugavegi í fjölbýlishúsi á lóð nr. 2-42 við Ásholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. maí 2015.