Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa var lögð fram fyrirspurn Röðuls Kolbeins Arinbjargarsonar dags. 9. apríl 2020 um breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 21 við Barðavog sem felst í að ósamþykkt íbúð í húsinu verði samþykkt. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020.