Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2017 var lögð fram umsókn Magnúsar Skúlasonar, mótt. 28. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu vegna lóðar nr. 3 við Birkimel. Í breytingunni felst að lögun lóðar og byggingarreits er breytt, samkvæmt uppdr. Magnúsar Skúlasonar, dags. 27. júní 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.