Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. desember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á baklóð, þrjár hæðir og kjallara, opna yfir lóðarmörk á nr. 12 og innrétta á Hótel Skjaldbreið á lóð nr. 16 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. janúar 2016.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.823