Á fundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2015 var lögð fram fyrirspurn
Feier ehf.
dags. 3. júní 2015 varðandi tilfærslu á lóðamörkum lóðanna nr. 26 og 28 við Tjarnargötu sem felst í að 100 cm breitt svæði sem í dag er syðst á lóð nr. 26 verður hluti og eign lóðar nr. 28, samkvæmt skýringarmynd Glámu-Kím ehf. dags. 3. júní 2015. Einnig er lagt fram bréf Glámu-Kím ehf. dags. 3. júní 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júní 2015.