Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ask arkitekta f.h. Sætrar ehf. dags. 5. ágúst 2011 um breytingu á deiliskipulagi Skeifu/Fen vegna lóðar nr. 11 við Grensásveg, skv. uppdrætti dags. 4. ágúst 2011. Breytingin felur í sér aukið byggingarmagn og breytt fyrirkomulag bílastæða. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. ágúst til og með 7. september 2011. Engar athugasemdir bárust.