Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 10. febrúar 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á erindi lóðarhafa að Seljavegi 2 dags. 4. febrúar 2015 um lóðamál að Mýrargötu, Seljavegi og Nýlendugötu. Óskað er eftir að umsögn berist innan tveggja vikna.