Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. mars 2017 þar sem sótt er um leyfi til að rífa mhl. 04 og hluta mhl. 02, sameina mhl. 02 og 03, byggja milligólf, nýja hæð ofaná bakhús, inndregna 5. hæð ofaná framhús og innrétta gististað í flokki V, teg. hótel fyrir 304 gesti í 146 herbergjum og veitingastað í flokki II í húsi á lóð nr. 2 við Seljaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. mars 2017.
Niðurrif: xx ferm., xx rúmm. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun samtals: xx ferm. xx rúmm. Gjald kr. 11.000