Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 23. janúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Arkitekta Hjördís og Dennis ehf. dags. 22. janúar 2015 um að byggja kvist á austurhlið hússins á lóðinni nr. 44A við Vesturgötu, samkvæmt skissu dags. 21. janúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2015.