Lögð fram umsókn Sigurðar Halldórssonar mótt. 16. júní 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skipholts 11-13 og Brautarholt 10-14 vegna lóðarinnar nr. 10-14 við Brautarholt. Í breytingunni felst að áður samþykktur byggingarreitur er færður inn á teikningu, nýtingarhlutfall lóðar að teknu tilliti til A, B og C rýma verður 1,43 og bílastæðum er fækkað um 5 stk. úr 53 í 48, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím ehf. dags. 16. júní 2015.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 8 og 16, Laugavegur 162 og Skipholt 11-13.