Á fundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2016 var lögð fram umsókn
Arkís arkitekta ehf.
, mótt. 10. desember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 9 við Engjateig. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 6. nóvember 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.