Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur Samgöngustofu, dags. 3. október 2016 ásamt tölvupósti Sævars Sævarssonar, dags. 30. september 2016, þar sem óskað er eftir að Reykjavíkurborg endurskoði neikvæða afgreiðslu sína frá embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016, varðandi útibú ökutækjaleigu þar sem láðist að nefna að umrædd afhending yrði á Fiskislóð 27 og 29. Einnig er lögð fram yfirlýsing Páls M. Magnússonar f.h. Löður ehf., dags. 30. september 2016. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. október 2016.