Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Plúsarkiteta dags. 14. október 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 19 við Gerðhamra. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit samkvæmt uppdrætti Plúsarkitekta dags. 12. október 2011. Tillagan var auglýst frá 19. október til og með 16. nóvember 2011. Engar athugasemdir bárust.