Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 11. mars 2016 var lögð fram fyrirspurn Katrínar Rósar Gýmisdóttur, mótt. 1. mars 2016, um að stækka húsið á lóð nr. 25 við Bergstaðastræti í samræmi við teikningar sem samþykkta voru á fundi byggingarfulltrúa 12 mars 1987. Til vara er óskað eftir leyfi til að lyfta þaki hússins. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2016.