Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 21. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. mars 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta skrifstofuhúsnæði (merkt 0202) í íbúð á annarri hæð hússins nr. 12A á lóðinni nr. 12 við Grensásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2014..