Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. mars 2019 var lögð fram fyrirspurn Rósu Bjarkar Hauksdóttur dags. 1. mars 2019 um breytingu á notkun hússins á lóð nr. 12 við Grensásveg úr snyrtistofu í gististað/farfuglaheimili. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2019.