Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. desember 2015 þar sem sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum innanhúss, sem felast í að færa stiga úr sal inn í glerskála, einnig er sótt um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III, tegund A og F á 2. hæð og í glerskála, við hús á lóð nr. 38 við Klapparstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. janúar 2016..
Gjald kr. 9.599