Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu borgarstjórnar f.h. fyrirtækisins B102 ehf. sem hefur sótt um rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn Blástein, Hraunbæ 102, Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 23:00 virka daga og til kl. 01:00 um helgar. Um er að ræða nýjan rekstraraðila að staðnum. Óskað er umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs um umsókn þessa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2015.