Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. janúar 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að breyta efri og neðri hæð atvinnurýmis 0001 og 0101 í íbúð í húsinu á lóð nr. 102C við Hraunbæ. Ljósmyndir fylgja. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2014.