Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Kristinssonar dags. 7. júní 2022 um breytingu á atvinnuhúsnæði á lóð nr. 102A við Hraunbæ, að hluta í íbúðir á jarðhæð bakatil og að hluta í smærri verslanir sem er í samræmi við aðrar verslanir í húsinu, samkvæmt skissum á byggingarnefndarteikningum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. júní 2022.