Á fundi skipulagsstjóra 8. júní 2012 var lagt fram erindi Hraunbrautar ehf. dags. 4. júní 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbæjar vegna lóðarinnar nr. 102D og E við Hringbraut. Í breytingunni felst breyting á notkun hússins, samkvæmt uppdr. KRark dags. 3. maí 2012. Erindi var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hraunbæ 102a, 102b, 102c, 102d, 102e, 102f, 102g, 102h og Rofabæ 23 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.