Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 17. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.170.1 og 1.170.2 vegna almenningssalernis sem kom á fyrir neðan við Bernhöftstorfu. Í breytingunni felst að settur er inn nýr byggingarreitur eingöngu ætlaður fyrir almenningssalerni, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2020.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.