Á fundi skipulagsfulltrúa 22. febrúar 2013 var lögð fram fyrirspurn
Arkís Arkitektar ehf.
dags. 21. febrúar 2013 um að endurskipuleggja og fjölga bílastæðum á lóðinni nr. 7 við Engjateig ásamt fjölgun bílastæða í götunni, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 21. febrúar 2013. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2013.