Lögð fram umsókn Davíðs Kristjáns Chatham Pitt f.h. Tvíeyki ehf., varðandi breytingu á deiliskipulagi Grófarinnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Vesturgötu. Í breytingunni felst að gera svalir á bakhlið (norðurhlið) húss í porti ásamt flóttastiga, stækka geymslur undir hluta af svölum og gera bólverk (gamlan hafnarkant) sýnilegan að hluta, samkvæmt uppdr. Davíðs Kr. Pitt arkitekts dags. 25. júlí 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. október 2021.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.