Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Nexus arkitekta dags. 15. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða eystri vegna lóðarinnar nr. 1 við Höfðabakka. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður fyrir mögulega skemmubyggingu í austurátt, samkvæmt uppdrætti Nexus arkitekta dags. 14. febrúar 2011, breyttur 11. mars 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. mars til og með 13. apríl 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Hjálmar Hlöðversson dags. 12. apríl 2011. Erindinu var frestað á fundi skipulagsstjóra 15. apríl 2011 og er nú lagt fram að nýju.