Lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 4. janúar 2021 ásamt bréfi dags. 4. janúar 2021 um breytingu á deiliskipulagi Einholts/Þverholts, reitir 1.244.1 og 1.244.3, vegna lóðarinnar nr. 13 við Þverholt, reitur C, sem felst í að fjarlægja byggingu á lóð og reisa íbúðarhús í staðinn, með að hámarki 38 íbúðum, í samræmi við íbúðarhús á reitum E og F í gildandi deiliskipulagi , samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 11. desember 2020.