Á fundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2015 var lögð fram umsókn Bakkastaða eignarhalsfélags ehf. dags. 21. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.244.2, Egilsborgarreits, vegna lóðarinnar nr. 1 við Háteigsveg. Í breytingunni felst tilfærsla á byggingarlínum, aukning á byggingarmagni o.fl., samkvæmt uppfærðum uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 15. maí 2015. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi skipulagsfulltrúa til umsækjanda dags. 3. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. apríl 2015.