Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. febrúar 2015 var lögð fram umsókn Bakkastaða eignarhalsfélags ehf. dags. 21. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.244.2 ,Egilsborgarreits, vegna lóðarinnar nr. 1 við Háteigsveg. Í breytingunni felst tilfærsla á byggingarlínum, aukning á byggingarmagni o.fl., samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 20. nóvember 2014. Umsókninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi skipulagsfulltrúa til umsækjanda dags. 3. mars 2015.