byggingarreitur fyrir niðurgrafna sorpgeymslu
Laugavegur 20-20A
Síðast Synjað á fundi fyrir 8 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 541
5. júní, 2015
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. maí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að leysa sorplosunarvanda með tveim niðurgröfnum sorpgeymslum í gangstétt fyrir framan hús á lóðum nr. 20 og 20A við Laugaveg.
Meðfylgjandi eru bréf Laugaverks dags. 17. maí, 5.12. 2015, 12.7. 2014, tölvupóstur byggingarfulltrúa dags. 16.3. 2015, bréf skipulagsfulltrúa dags. 18.5. 2015 og 18.1. 2012, tölvupóstar dags, 24.2. 2012, 29.6. 2011, 21.9. 2011, 19.5. 2015.
Svar

Vísað til umsagnar Orkuveitu Reykjavíkur og Samgöngustjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101419 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017517