Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða fjölbýlishús með 7 íbúðum og verslun í vesturhluta 1. hæðar á lóð nr. 2 við Norðurbrún. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020.
Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 26. maí 2020. Stærð, A-rými: 907,1 ferm., 2.773,3 rúmm. Gjald kr. 11.200