Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2017 var lögð fram umsókn
Vesturgarðs ehf.
, mótt. 30. ágúst 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðar nr. 59 við Laugaveg. Í breytingunni felst að leiðrétta landnotkun svæðisins úr M1c í M1a, skv. uppdrætti Trípólí arkitekta, dags. 29. júlí 2015 br. 18. maí 2017. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuðar, dags. 23. ágúst 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.