Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn
Arkís arkitekta ehf.
dags. 7. janúar 2019 ásamt bréfi dags. 18. desember 2018 um að koma fyrir íbúðarhóteli með 10-12 herbergjum á efri hæð hússins á lóð nr. 7 við Vagnhöfða. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.