Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Yrki arkitekta ehf.
, mótt. 21. júní 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum í 130 íbúðir (eða allt að 156 íbúðir miðað við vikmörk + 20%) og felld út heimild til að byggja verslunar- og þjónustuhúsnæði á lóðinni, formi og stærð byggingarreita er breytt lítillega, þakgörðum efri hæða fækkað og breidd svalaganga minnkuð, bílastæðaskilmálum er breytt, bílakjallari minnkaður og fjöldi bílastæða ofanjarðar er aukinn og fyrirkomulag sorpgeymsla er breytt þannig að í stað djúpgáma eru hefðbundin sorpskýli á lóð, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 5. júlí 2017. Tillagan var auglýst frá 14. júlí 2017 til og með 25. ágúst 2017. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Sigurlaug H. Pétursdóttir, hdl. f.h. Reita, dags. 24. ágúst 2017.