Lögð fram tillaga Yrki arkitekta að breytingu á deiliskipulagi reitsins. Breytingin felst í megin atriðum í því að allur götureiturinn er skipulagur sem ein lóð í stað þriggja lóða áður. Lagt er til breytt fyrirkomulag byggðarinnar, 1-4 hæða byggingar raðast í kringum inngarð. Heimild er fyrir allt að 120 íbúðum og verslun- og þjónustu austast næst Spönginni: Gildandi deiliskipulag reiknar með tveimur íbúðarhúsalóðum með 35 íbúðum að Móavegi 2 og 4 og skipulagi er frestað í Spönginni 3-5.