Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 var lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 11. júní 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að girða fyrir sérafnotafleti íbúða á jarðhæð á alla vegu, samkvæmt tillögu
Yrki arkitekta ehf.
ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.