Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. febrúar 2019 var lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 14. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að koma fyrir djúpgámum á lóð í stað sorpskýla og hækka hámarkshæð hjólaskýla úr 3,0 m. í 4,5 m., samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
dags. 13. nóvember 2018, síðast breytt 2. apríl 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018..