Lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 14. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að koma fyrir djúpgámum á lóð í stað sorpskýla og hækka hámarkshæð hjólaskýla úr 3,0 m. í 4,5 m., samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
dags. 13. nóvember 2018.
Svar
Vísað til meðferðar skipulagsfulltrúa. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.