Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á hús ásamt stigahúsi og svalagangi á bakhlið og innrétta sem gistiheimili og verslun í húsi á lóð nr. 29A við Skipholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2017.
Stækkun A-rými: x ferm., x rúmm. B-rými: x ferm., x rúmm. Gjald kr. 10.100