Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn THG Arkitekta ehf. dags. 8. apríl 2022 um stækkun hússins á lóð nr. 2-6 við Laugalæk, samkvæmt frumtillögu THG Arkitekta ehf. ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar Borgarsögusafns Reykjavíkur og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 10. ágúst 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. ágúst 2022.