Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Þormóðs Sveinssonar f.h. Ingibjargar H. Harðardóttur, mótt. 18. mars 2016, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Foldahverfis suður 1. og 2. áfanga vegna lóðarinnar nr. 49-49a við Hverafold, dags. 15. mars 2016. Í breytingunni felst að skilmálum fyrir einbýlishús verði breytt í skilmála fyrir parhús og að heimilt sé að taka í notkun þegar gerð sökkulrými, samkvæmt tillögu, dags. 17. maí 2016. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa, dags. 13. maí 2016. Tillagan var auglýst frá 3. júní 2016 til og með 18. júlí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Einar S. Hálfdánarson og Regína G. Pálsdóttir, dags. 14. júlí 2016 og Pétur Jóhannesson, dags. 14. júlí 2016.